Öryggi

Langar þig að vita meira? Hér er hlaðvarpsþáttur um öryggismál

Við stefnum að því alla daga að skapa heilbrigðan vinnustað og fyrirtækjamenningu sem styður starfsfólk í að leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir slys og stuðla að vellíðan í starfi.

Tvö fjarveruslys urðu hjá starfsfólki okkar á árinu 2023. Slysin voru ekki alvarleg, annað slysið var skurður á fingri og hitt fall þar sem starfsmaður fékk mar á bak. Í báðum tilfellum náðu þau sér að fullu. Síðast varð fjarveruslys hjá Landsneti árið 2017.

Þjálfun starfsfólks í öryggismálum tekur mið af þeim áhættuþáttum sem starfsfólk er útsett fyrir hverju sinni. Áherslur í þjálfun taka mið af áhættum í framkvæmdum og rekstrarverkum.

Við erum í samstarfi við önnur orkufyrirtæki landsins og sambærileg innviðafyrirtæki á Norðurlöndum um öryggismál sem nýtast okkur til að tryggja bestu viðmið og góða starfshætti hverju sinni.

Neyðarstjórnun

Við höfum verið með starfsemi sína á neyðar- eða hættustig nánast allt árið. Helstu ásæður er ástandið á Reykjansesi ásamt válegum veðurspám.

Hlutverk okkar í vá er að vinna með Almannavörnum ef hætta steðjar að raforkukerfum landsins. Það er einnig hlutverk Landsnet samkvæmt raforkulögum að samræma neyðarviðbrögð annar raforkufyrirtækja þannig að þau falli að verklagi og uppfylli skilvirkt samstarf við Almannavarnarkerfið í landinu. Varnir og viðbrögð hafa gengið vel og áfallalaust.

Upplýsingaöryggi

Á árinu var upplýsingaöryggi (Cyber) mikið í umræðunni í þjóðfélaginu, ekki síst í ljósi árása á tæknilega innviði raforkukerfis Úkraínu.

Sem mikilvægur innviður leggjum við mikla áherslu á varnir upplýsingakerfanna okkar.

Haldin var netöryggisæfing á vegum NSR í samvinnu við KraftCert, Orkustofnun og Cert-is. Þar komu saman fyrirtæki í orkugeiranum á íslandi  og æfðu saman viðbrögð við netvá. Gekk æfingin vel og styrkti samstarfið - við þökkum öllum sem tóku þátt.

Upplýsingastýring

Skjöl og gögn okkar eru verðmætar upplýsingaeignir og um þau gilda ýmsar reglur og lög, þar á meðal upplýsingalög og lög um opinber skjalasöfn. Til að tryggja að við fylgjum lögum, og jafnframt til að vinnan okkar sé skilvirk og örugg, þurfum við að þekkja og fylgja verklagi um hvaða tölvukerfi skal nota í hvaða tilvikum og loks hvernig sé rétt að vista skjöl og gögn.

Á árinu voru stofnuð 1.050 verkefni og 21.056 skjöl vistuð.