Mannauður og menning

Við erum lykilinnviður þjóðarinnar og allt okkar starf snýst um að flytja raforku sem drífur áfram lífsgæði og sköpunarkraft samfélagsins til framtíðar. Við gerum okkur grein fyrir skyldum okkar og þeirri veigamiklu ábyrgð sem okkur er falin í rekstri, viðhaldi og framtíðaruppbyggingu flutningskerfis raforku.

Við héldum frábæran samverudag með öllu okkar samstarfsfólki þann 12.oktober, dagur sem var fullur af gleði, skemmtun og fróðleik . Dagur eins og þessi skiptir okkur miklu máli og mikilvægt að sem flestir taki þátt.

Ráðningar og velta

Á árinu bættust 21 nýjir samstarfsfélagar í hópinn,  15 karlar og 6 konur. Þar að auki voru 4 tímabundnar ráðningar, allt konur, 33 sumarráðningar, 18 karlar og 15 konur. Af sumarnemunum voru 3 nemar sem höfðu tök á að vinna áfram samhliða námi við hin ýmsu verkefni.

Á árinu hættu 17 fastráðnir einstaklingar, 14 karlar; 3 konur, og þökkum við þeim fyrir vel unnin störf.

Fræðsla og þjálfun

Með markvissri fræðslu og greiningum á þekkingu viðhöldum við og þróum hæfni og tryggjum að starfsfólk okkar búi yfir allri þeirri þekkingu sem það þarf til að geta sinnt störfum sínum vel.

Með áherslu á markvissa menntun, þjálfun og uppbyggilega vinnustaðamenningu erum við vel í stakk búin til að mæta kröfum snjallrar framtíðar fyrir innviði íslensks samfélags. Á árinu fékk starfsfólk að meðaltali um 84 klukkustundir í aðkeyptri þjálfun, námskeið eða önnur réttindi eða fræðslu vegna starfs síns. Inni í þessum tímum er ekki sértæk þjálfun innanhúss, kennsla, verkþjálfun eða önnur sértæk starfsþjálfun.

Vinnustaðagreining

Við lögðum fyrir fólkið okkar könnun þar sem við spurðum um eitt og annað sem snýr að vinnustaðnum. Það er greining sem við höfum gert undanfarin ár. Helgun og tryggð er sterk hjá okkur og starfsánægja er yfir gagnabanka Gallup sem styður okkar vegferð í því að vera eftirsóknarverður vinnustaður.

Jafnréttismál

Í lok ársins voru 29% starfsfólks konur og 71% karlar og hefur þetta hlutfall verið sífellt að jafnast á síðustu árum. Kynjahlutfall stjórnenda er 40% konur á móti 60% karla og í framkvæmdastjórn er jafnt hlutfall, eða 50%.
Niðurstöður launagreininga á árinu sýna að óútskýrður launamunur hjá okkur í Landsneti er enginn og frávik telst óverulegt, eða 1,7%, konum í vil.

Kynjahlutfall %

Jafnlaunagreining

Kynjahlutfall %

Kynjahlutfall stjórnar %

Sérfræðistörf %

Iðnaðarfólk %

Annað starfsfólk %

Millistjórnendur %

Framkvæmdastjórar %

Stjórn Landsnets ræður forstjóra fyrirtækisins, semur starfslýsingu hans og ákveður starfskjör. Stjórn tekur mið af ákvæði eigendastefnu Landsnets og að laun stjórnenda skuli standast samanburð við sambærileg störf en ekki þó vera leiðandi og að teknu tilliti til þess að fyrirtækið er í opinberri eigu. Stjórn endurskoðar laun forstjóra reglulega með tilliti til hækkana á markaði í sambærilegum störfum, sanngirni og samfélagslegrar ábyrgðar.

Launahlutfall forstjóra er reiknað sem heildarlaunagreiðslur forstjóra sem hlutfall af miðgildi launa starfsfólks í fullu og ótímabundnu starfi. Þetta hlutfall hefur hækkað tvö síðustu ár.

Menningarvegferð

Langar þig að vita meira? Hér er hlaðvarpsþáttur um hugarfarsbreytinguna

Síðastliðin þrjú ár höfum við lagt mikla áherslu á að skapa enn betra starfsumhverfi sem byggir á uppbyggilegum samskiptum og góðum starfsanda. Mikil og markviss vinna hefur verið unnin frá 2021 í vinnustaðamenningu okkar. Í þessari vegferð hefur menningin verið mæld með viðurkenndu og vel rannsökuðu mælitæki (OCI) frá Human Synergistics og vorum við fyrst íslenskra fyrirtækja til að fara þessa vegferð með þeim . Mælitækið metur vinnustaðamenningu út frá 12 hugsunar- og hegðunarþáttum, þar af fjórum uppbyggilegum þáttum sem við leggjum megináherslu á. Þessi fjórir þættir eru árangur, sjálfsþroski, hvatning og velvild.

Áhersla hefur verið lögð á fræðslu og reglulegar vinnustofur fyrir allt okkar starfsfólk og stjórnendur með það að markmiði að auka uppbyggilega menningu. Rannsóknir hafa sýnt að í þeim fyrirtækjum þar sem uppbyggileg menning er mikil líður fólki vel, það nær árangri, vex og dafnar í starfi. Í þessari vinnu höfum við eflt starfsfólk okkar og boðið áhugasömum upp á 360° mat (LSI), sem byggir á sjálfsmati og mati annarra. Þar er hugsun fólks og hegðun metin út frá sömu þáttum og menningarþættir fyrirtækja. Fólkið okkar sem hefur fengið slíkt mat hefur í kjölfarið getað sótt sér 22 klukkustunda hópmarkþjálfun og unnið enn frekar með niðurstöður matsins.

Í dag hafa u.þ.b. 72 tekið matsprófið og notað niðurstöður sér til framfara og vaxtar. Við hlúum að menningu okkar daglega með því að beita uppbyggilegum samskiptum, veitum og köllum eftir endurgjöf og hrósum fyrir það sem vel er gert. Til að auka faglega endurgjöf og hrós starfsmanna á milli má nefna m.a. endurgjafarnámskeið sem við keyrðum með öllum stjórnendum og á fjórða tug annarra starfsmanna.
Í lok ársins mældum við menninguna okkar aftur með sömu aðferðafræði og var gert árið 2021.

Niðurstöður voru umfram væntingar og sýndu mikla aukningu á uppbyggilegri menningu okkar. Uppbyggilegu stílarnir eru í dag orðnir ríkjandi í mældri vinnustaðamenningu Landsnets.