Viðskiptaumhverfið
Viðskiptavinir okkar eru 26, fimm dreifiveitur, ellefu stórnotendur og tíu raforkusalar. Af raforkusölum eru sex framleiðendur og fjórir eingöngu raforkusalar. Um 60% allra fyrirspurna á árinu komu frá notendum og um 40% frá raforkuframleiðendum. Þrír fundir voru haldnir í viðskiptaráði Landsnets.
Virðiskeðja
Aukin uppbygging á raforkukerfi Evrópu hefur skapað þrýsting á aðfangakeðjuna með lengri afhendingartímum og hækkandi verði. Viðbrögðin eru að leita nýrra birgja á fjarlægari mörkuðum.
Á árinu 2023 voru 63 útboð. 75% samninga voru gerð við íslensk fyrirtæki og 25% við erlend.Samningsfjárhæðir frá 1,5 milljónum upp í um 2 milljarða.
Verðfyrirspurnir voru 20–30 og af þeim 80–90% innlendir aðilar.
Upprunaábyrgðir
Nokkur stöðugleiki hefur myndast í kringum útgáfu upprunaábyrgða undanfarin ár, þar sem svo til öll orkuframleiðsla á Íslandi er upprunavottuð. Nýjar virkjanir eru jafnan vottaðar skömmu eftir að orkuframleiðsla þeirra hefst.
Við erum meðlimir að AIB sem eru samtök útgefenda upprunaábyrgða í Evrópu. Hlutverk AIB er að styðja við og styrkja regluverk (EECS-reglur) og rekstur gagnatorgs upprunaábyrgða.
Tilkynning barst til AIB um að meðhöndlun upprunaábyrgða á Íslandi væri ekki í samræmi við EECS-reglur, nánar tiltekið að tilteknir stórnotendur haldi því fram að framleiðsla þeirra noti endurnýjanlega orkugjafa vegna staðsetningar sinnar eða með vísun í orkukaupasamninga sína án þess að hafa keypt viðeigandi upprunaábyrgðir.
Úrbótakrafa barst okkur sem snerist um að greina stöðuna og meta hvort tvítalning ætti sér stað, treysta regluverkið og efla eftirlitsheimildir. Samhliða þessari úrbótakröfu lokaði AIB fyrir útflutning á upprunaábyrgðum, tímabundið þar til lokið yrði við að uppfylla úrbótakröfurnar.
Útflutningsbanni var aflétt skömmu síðar með þeim skilyrðum að Landsnet skyldi fyrir 1. október leggja mat á það hvort um væri að ræða tvítalningu í skilningi EECS-reglna AIB og greina frá því hvernig brugðist yrði við slíkri tvítalningu yrði slíkt staðfest.
Þann 8. október úrskurðaði svo AIB að Ísland uppfyllti allar kröfur upprunaábyrgðakerfis þess og verður ekki gripið til frekari ráðstafana gagnvart okkur eða íslenskum upprunaábyrgðum. Óvissu um sölu íslenskra upprunaábyrgða var því aflétt án fyrirvara.