Hagaðilar

Þegar kemur að hagaðilum Landsnets er margt sem þarf að horfa til og er afleiðing af samræðum og samvinnu. Við byggjum okkar samskipti á gagnsæi og heiðarlegum samskiptum. Samskiptaáætlun er til staðar til að halda utan um samskipti við hagaðila, samstarfs- og framkvæmdaverkefni eru skráð og fundað reglulega með hagaðilum.

Birgjar okkar og verktakar fylgja eftir í öryggis- og umhverfismálum ásamt viðskiptasiðferði. Hagaðilagreining byggir á samstarfsflötum og sameiginlegum hagsmunum. Sett hefur verið á stofn hagsmunaráð Landsnets en megintilgangur þess er að skapa vettvang umræðna milli hagaðila í samfélaginu um uppbyggingu raforkukerfisins.

Aðfangakeðja og birgjar

Aukin uppbygging á raforkukerfi Evrópu hefur skapað þrýsting á aðfangakeðjuna með lengri afhendingartímum og hækkandi verði. Viðbrögðin eru að leita nýrra birgja á fjarlægari mörkuðum

Við leggjum áherslu á keðjuábyrgð og tengingu hennar við alþjóðleg viðmið sem hluta af samfélagsábyrgð okkar. Persónuöryggi ermikilvægur þáttur í innkaupum og nær jafnt til starfsfólk Landsnets sem og ytri aðila. Innkaupum okkar er stýrt með ferlum sem leggja áherslu á samkeppni, þar sem útboð er meginreglan í stærri innkaupum til hagsbóta fyrir okkur. Ferlarnir endurspegla jafnframt stefnu félagsins um öryggi, samfélagsleg ábyrgð og nýksöpun. Við gerum okkur grein fyrir að hægt er að ná miklum árangri í samfélagsábyrgð og umhverfismálum með ábyrgum og markvissum aðgerðum.

Útboðin voru 63, 75% samninga við íslensk fyrirtæki og 25% við erlend. Samningsfjárhæðir frá 1,5 milljón upp í um 2 milljarða. Verðfyrirspurnir 20-30 og af þeim 80-90% innlendir aðilar.