Stjórnunarkerfi
Áhersla er lögð á stöðugar umbætur og eftirfylgni sem nær til allrar starfseminnar með skilvirkni ferla að markmiði.
Unnið var að því að nýta rafræn kerfi betur í þeim tilgangi að ná heildaryfirsýn yfir verkefnin en þannig getum við betur séð hversu mörg verkefni eru í gangi og metið álag og rými til að bæta skilvirkni og minnka sóun.
Þá var hafin vinna við að ná yfirsýn yfir umbótaverkefni með rafrænni verkefnaskrá í þeim tilgangi að mæla árangur af stærri umbótaverkefnum. Þróaðir voru lifandi mælikvarðar svo hægt væri að fylgjast með í rauntíma og grípa fyrr inn í ef frávik yrðu. Úrgangsstjórnun var betrumbætt með nánari útfærslu, nýjum merkingum og minni sóun. Hertari aðgangsstýringar inn á öryggissvæði voru skilgreind og öryggis- og umhverfisferðir voru farnar með stjórnendum. Upplýsingaöryggi í stafrænum tengivirkjum var greint og sett af stað úrbótaverkefni til að skoða verklag starfsfólks þegar unnið er í stafrænum tengivirkjum.
Jafnframt var unnið að frekar þróun og greiningu á launavinnslu. Umbætur á verklagi voru gerðar á smávörulager til að tryggja betri umgengni starfsfólks um lagerinn og verkefni var sett af stað er snýr að öryggisflokkun og merkingu gagna.
Vottanir
Hjá Landsneti er unnið með samþætt stjórnunarkerfi, vottað kerfi skv. ISO 9001, 14001, 27001 og 45001, ásamt jafnlaunastaðli ÍST 85:2012 og RÖSK . Breytingar í ytra og innra umhverfi gera auknar kröfur á starfsemina og þess vegna er mikilvægt að markmið séu skýr og að stjórnunarkerfinu sé viðhaldið til tryggja samfelldan og öruggan rekstur. Reglulegt viðhald með ytri og innri úttektum er nauðsynlegur liður í því að viðhalda gildi slíkra vottana. Einnig að ferlum og gæðaskjölum sé fylgt til hlítar til að auka skilvirkni og minnka sóun.