Stjórnarhættir

Stjórn okkar leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum. Stjórnin hefur sett sér starfsreglur sem eru birtar á heimasíðu félagsins, þar sem valdsvið hennar er skilgreint og verksvið gagnvart forstjóra. Í þessum reglum er meðal annars að finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna, reglur um þagnarskyldu, upplýsingargjöf forstjóra gagnvart stjórn og fleira.

Stjórnin er skipuð til eins árs í senn. Til að fullnægja lögbundnum kröfum um fyllsta hlutleysi og jafnræði í störfum ber stjórnarmönnum að vera sjálfstæðir og að öllu leyti óháðir öðrum fyrirtækjum sem stunda vinnslu, dreifingu og sölu raforku.

Stjórnin fer með málefni félagsins og skal annast um að stjórnskipulag rekstrar þess og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi. Stjórnin ræður forstjóra sem ber ábyrgð á daglegum rekstri félagsins.

Sigrún Björk Jakobsdóttir stjórnarformaður
Álfheiður Eymarsdóttir
Birkir Jón Jónsson
Elín Björk Jónasdóttir
Friðrik Sigurðsson

Varamenn í stjórn
Hafdís Gunnarsdóttir
Jón Gunnar Vilhelmsson

Framkvæmdastjórn

Guðlaug Sigurðardóttir

framkvæmdastjóri fjármála og árangurs

Eigendur

Landsnet er hlutafélag í eigu ríkissjóðs og Orkuveitu Reykjavíkur og tók til starfa í ársbyrjun 2005. Fyrirtækið starfar skv. sérleyfi og er háð eftirliti Orkustofnunar sem ákveður tekjumörk sem gjaldskrár byggja á.

Skipurit

Breytingarnar í samfélaginu, raforkumarkaður, nýir orkugjafar, orkuskiptin, fjölbreyttari framleiðsla og aukið samtal við viðskiptavini gaf tilefni til að láta breytingarnar ná inn til okkar.

Til að styðja við innleiðingu á stefnu fyrirtækisins og gera okkur kleift að leysa verkefni okkar í takt við nýjar áherslur var skipuritið endurskoðað og nýtt kynnt til sögunnar í byrjun árs 2023.

Verulegar breytingar á skipuriti Landsnets voru kynntar á starfsmannafundi þann 15. febrúar 2023. Í skipulagsbreytingunum voru teymi og svið ýmist búin til, lögð niður, sameinuð eða endurskilgreind með það að markmiði að geta betur mætt nýjum áskorunum og breyttu landslagi á orkumarkaði. Orkuumhverfið er sífellt að breytast með frekari kröfum frá viðskiptavinum okkar og umhverfinu, m.a. þegar litið er til orkusjálfstæðis, fjórðu iðnbyltingarinnar, orkuskiptanna, gagnsærri orkumarkaðar, loftslagsmála, nýrra orkugjafa og nýrra notenda.

Með breytingunum og framvirkri hugsun verðum við betur í stakk búin til að ná settum markmiðum sem felast í ofangreindum áskorunum en jafnframt stefnu okkar í að:

  1. reka hagkvæmt og áreiðanlegt flutningskerfi
  2. sýna fram á ábyrgan rekstur, fjárfestingar og fjármögnun,
  3. veita gagnadrifna þjónustu byggða á rauntímaupplýsingum,
  4. ýta undir virkan orkumarkað með gagnsæi að leiðarljósi í viðskiptum og verði.

Við erum spennt fyrir komandi áskorunum.