Sjálfbærnistefna

Við hjá Landsneti viljum byggja upp skýra ímynd sem tengist fagmennsku og trausti og leggjum við mikla áherslu á sjálfbærni. Áhersla er lögð á að starfa sem nútímalegt og framsækið fyrirtæki sem skoðar ólíkar lausnir með opnum huga og með heildarhagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Sjálfbærnistefna okkar byggir á hlutverki fyrirtækisins og framtíðarsýn og er henni ætlað að stuðla að því að það ræki hlutverk sitt af natni og í sem víðtækastri sátt við samfélag og umhverfi. Sjálfbærnistefnan tekur utan um stefnur á sviði umhverfismála, loftslagsmála og aðrar tengdar stefnur.

Við stefnum að því alla daga að gera betur í sjálfbærni og þar af leiðandi umhverfismálum. Við eflum umhverfisvitund hjá starfsfólki og þekkingu á þeim umhverfisáhættum sem eru til staðar. Loftslagsmál eru raforkumál og tryggjum við samkeppnishæfa endurnýjanlega orku gagnvart mengandi orkugjöfum. Við lágmörkum losun gróðurhúsalofttegunda og höfum sett okkur það markmið að verða kolefnishlutlaust félag árið 2030 þar sem við lágmörkum losun gróðurhúsalofttegunda.

Við fylgjum eftir sjálfbærnistefnu og ber forstjóri ábyrgð á innleiðingu hennar og að hún sé í samræmi við alþjóðamælikvarða á sviði sjálfbærniupplýsingagjafar og meginmarkmiða félagsins til framtíðar. Stýrihópur í sjálfbærni hefur verið starfandi hjá okkur og er hlutverk hans að hafa umsjón með framkvæmd sjálfbærnistefnu, framkvæmd sjálfbærni áhættumats með tilliti til rekstraráhættu, þróa sjálfbærnimarkmiog fylgjast með framförum á sviði sjálfbærni.