Spennandi tímar
Það eru spennandi tímar í orkugeiranum, laga- og rekstarumhverfi fyrirtækjanna er að breytast hratt um þessar mundir. Einn af þeim hlutum sem er að breytast er umhverfi sjálfbærnimála og sjálfbærni upplýsingagjafar. Markmiðið er að tryggja samræmdar upplýsingar um hvernig fyrirtæki greina frá sjálfbærniáherslum samhliða ársreikningi ásamt því hvernig tekið er tillit til neikvæðra áhrifa sjálfbærniþátta við fjárfestingaákvarðanir. Sjálfbærniupplýsingagjöf Landsnets fellur undir CSRD (Corporate Sustainability Reporting Directive) tilskipun Evrópusambandsins sem fylgir ESRS (European Sustainability Reporting Standard), sem er samræmanlegur GRI sjálfbærnistaðlinum. Flokkunarreglugerð ESB tók gildi á Íslandi 1. júní 2023 með lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Lögin voru afturvirk til 1. janúar 2023 og gilda því um allt fjárhagsárið 2023.