Mikilvægisgreining
Á árinu var stýrihópur um sjálfbærni settur á laggirnar en hlutverk hópsins er að styðja við innleiðingu á Global Reporting Initiative (GRI) sjálfbærnistaðlinum. Mikilvægur þáttur í þeirri innleiðingu felst í mikilvægisgreiningu (e. Materiality Assessment). Samkvæmt viðmiðum ESRS-staðals Evrópusambandsins (e. European Sustainability Reporting Standards) er gerð krafa um að félög geri tvíþátta mikilvægisigreiningu (e. Double Materiality). Til að mikilvægisgreining teljist tvíþátta skal meta áhættu og tækifæri hvers mikilvægisþáttar auk fjárhagslegra og samfélagslegra áhrifa. Einnig skal greina hagaðila, eiga samtal við þá og gera grein fyrir því hvernig tekið var tillit til sjónarmiða þeirra.
Mikilvægisgreining hófst á árinu þar sem stýrihópur í sjálfbærni var, ásamt fleira starfsfólki sem í heild tengist allri starfsemi okkar, með vinnustofur þar sem unnið var með áhættu og tækifæri og sjónum einkum beint að utanaðkomandi þáttum sem hafa áhrif á starfsemi okkar. Jafnframt var sjónum beint að áhrifum sem reksturinn hefur á umhverfi og samfélag.
Víðtækt samtal var um mikilvægisþætti sem voru til grundvallar og þeir aðlagaðir eftir þörfum. Vinnustofur snerust um að draga fram mikilvægustu þættina í starfseminni en ekki leggja mat á að aðrir þættir væru ekki mikilvægir, eingöngu var reynt að draga fram þá allra mikilvægustu. Að lokum var kosið um vægi mikilvægisþátta. Samtöl við lykilhagaðila hófust í byrjun árs 2024 og er sú vinna enn í gangi. Samtal við hagsmunaaðila er grunnur mikilvægisgreiningar á áherslum starfseminnar er varðar sjálfbærniþætti.