Flokkunarreglugerð

Flokkunarreglugerð ESB tók gildi á Íslandi 1. júní 2023 með lögum nr. 25/2023, um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Tilgangur reglugerðarinnar er að skilgreina hvaða atvinnustarfsemi telst vera umhverfislega sjálfbær út frá tæknilegum matsviðmiðum sem koma fram í framseldri reglugerð 2021/2139 og á að stuðla að gagnsæi í sjálfbærniupplýsingagjöf.

Á Íslandi gildir reglugerðin um fyrirtæki sem falla undir skyldu til að skila ófjárhagslegum upplýsingum skv. gr. 66 d í ársreikningalögum nr. 3/2006 og er Landsnet þar á meðal. Í skýringum um ófjárhagslega upplýsingagjöf í ársreikningi Landsnets má sjá hverjar niðurstöður félagsins voru skv. aðferðafræði reglugerðarinnar.
Aðferðafræðin samanstóð af fimm skilyrðum og uppfylli félag þau skilyrði telst það samræmt (e. aligned) skv. flokkunarreglugerðinni.

Skrefin eru þessi:

  • Mat á hæfi atvinnustarfseminnar (e. eligibility): Atvinnustarfsemi fyrirtækis þarf að uppfylla það að vera hæf/gjaldgeng skv. flokkunarreglugerðinni. Þá er starfsemi fyrirtækis borin saman við skilgreiningar í reglugerð ESB en þar er búið að skilgreina hvaða atvinnustarfsemi flokkast sem hæf starfsemi.

  • Mat á hvort starfsemi sé samræmd (e. aligned): Til þess að atvinnustarfsemi teljist samræmd og þar með uppfylla skilyrði flokkunarreglugerðarinnar um að vera umhverfislega sjálfbær þarf hún að stuðla að verulegu framlagi (e. substantial contribution) að lágmarki að einu af þeim sex umhverfismarkmiðum sem eru sett fram.
    Þau eru:

  • Mildun loftslagsbreytinga (e. Climate change mitigation)

  • Aðlögun að loftslagsbreytingum (e. Climate change adaptation)

  • Sjálfbær nýting og verndun vatns- og sjávarauðlinda (e. Sustainable use and protection of water and marine resources)

  • Umbreyting í hringrásarhagkerfi (e. Transition to a circular economy)

  • Mengunarvarnir og eftirlit með mengun (e. Pollution prevention and control)

  • Verndun og endurheimt líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa (e. Protection and restoration of biodiversity and ecosystems)

  • Valda ekki umtalsverðu tjóni (e. do no significant harm): Auk þess að stuðla að verulegu framlagi til umhverfismarkmiðanna má atvinnustarfsemin ekki valda umtalsverðu tjóni á hinum fimm umhverfismarkmiðunum.

  • Uppfylla lágmarksverndarráðstafanir (e. Minimum Social Safeguards): Atvinnustarfsemin verður að uppfylla lágmarksverndarráðstafanir skv. skilgreiningu ESB. Eru þar fjögur atriði sem þarf að hafa í huga: mannréttindi, spilling og mútur, skattlagning og sanngjörn samkeppni.

  • Lykilmælikvarðar reiknaðir: Hlutföll hæfs og samræmds hluta atvinnustarfsemi fyrir veltu, rekstrarkostnað og fjárfestingarkostnað eru reiknuð út frá niðurstöðum fyrri skrefa

Hægt er að nálgast niðurstöður flokkunarreglurnar í heild sinni í ársreikningi Landsnets 2023, sjá hér