Ávarp stjórnarformanns

Landsnet er þjónustufyrirtæki og hefur veigamiklu hlutverki að gegna við að viðhalda og reka eina af grunnstoðum samfélagsins, flutningskerfi raforku. Rafmagn er undirstaðan í nútímasamfélögum, byggir upp og leggur grunn að öllu daglegu lífi okkar. Rafmagn er lífsgæði og á síðastliðnu ári vorum við minnt á það hversu mikilvæg lífsgæði það eru að hafa flutnings- og dreifikerfi raforkunnar öruggt og traust.

Á árinu gekk okkur vel að halda ljósunum á landinu logandi þrátt fyrir stórar truflanir og flutningstakmarkanir, þar vil ég nota tækifærið og þakka starfsfólki sérstaklega fyrir vel unnin og fumlaus störf. Hjá fyrirtækinu er ríkur vilji til að gera betur í dag en í gær og hann birtist sérstaklega við erfiðar aðstæður bæði á sjó og landi.

Framundan eru spennandi tímar. Áfram höldum við með mikilvægasta verkefnið, að undirbúa og reisa nýja kynslóð byggðalínunnar sem tekur við af þeirri gömlu sem nú er víða komin á aldur. Holtavörðuheiðarlína er komin í samráðsferli, ferli sem við erum stolt af og hefur gefist vel í fyrri verkefnum. Línan mun tengja saman Blöndu og Hvalfjörð, auka afhendingargetu og tryggja að meginflutningskerfið standi ekki í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu og eðlilegri þróun í landinu.

Áherslur Landsnets eru á hagkvæmt og áreiðanlegt flutningskerfi og ábyrgan rekstur. Við viljum líka veita gagnadrifna þjónustu sem byggir á rauntímaupplýsingum. Og stóra markmiðið er að koma á virkum viðskiptavettvangi raforku sem býr yfir gagnsæi í verðmyndun. Það er sá grunnur sem við munum byggja á til framtíðar.

Þessar áherslur verða unnar hér eftir sem hingað til í þéttri og góðri samvinnu við samfélagið.

Okkar samfélagslegu ábyrgð eru gerð góð skil hér í árs- og sjálfbærniskýrslu. Ég hvet ykkur til að kynna ykkur hana vel, fylgjast með því sem Landsnet er að gera á samfélagsmiðlum og nýta sérhvern samráðsvettvang sem stofnaður er.

Nú er lokið fyrsta rekstrarári fyrirtækisins í beinni ríkiseigu en með hlutlausu eignarhaldi var styrkari stoðum rennt undir gagnsæi og jafnræði á raforkumarkaði. Áskoranir hér á landi á síðasta ári hafa aukið upplýsta umræðu um verkefni og öryggi í raforkumálum og það er vel.

En framtíðin er ljós og það eru forréttindi að vera hluti af því afli sem mun knýja áfram bjarta framtíð Landsnets og samfélagsins alls.

Sigrún Björk Jakobsdóttir, stjórnarformaður.

Sigrún Björk Jakobsdóttir stjórnarformaður okkar í pontu á vorfundi Landsnets
Sigrún Björk Jakobsdóttir stjórnarformaður okkar í pontu á vorfundi Landsnets