Ávarp forstjóra
Árið var annasamt og krefjandi fyrir okkur hjá Landsneti. Krefjandi áskoranir vegna markmiða um orkuskipti og aukins raforkuöryggis leiddu til umfangsmikilla framkvæmda í flutningskerfinu þrátt fyrir að tafir væru áfram í stórum línuframkvæmdum. Mikil áhersla var lögð á að klára leyfisferlið fyrir þessar framkvæmdir og mikilvægur áfangi náðist með framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2.
Það er engu að síður staðreynd að í áskorunum felast mörg tækifæri. Við héldum þannig áfram að marka leiðina að orkuskiptunum meðal annars með stofnun Elma orkuviðskipta, dótturfélags Landsnets, sem hefur það hlutverk að undirbúa stofnun vettvangs fyrir gengsæ orkuviðskipti og stuðla að aukinni samkeppni á markaði til hagsbóta fyrir neytendur. Fyrir utan að hafa gagnsæi á hvernig verðmyndun er á orku og bætt aðgengi nýrra aðila að orkumarkaðnum, þá er ekki hægt að líta fram hjá því að uppfærsla á viðskiptaumhverfinu er grunnforsenda fyrir því að við sem samfélag náum að skipta út mengandi orkugjöfum og náum árangri í að minnka losun kolefnis.
Þessu til viðbótar voru náttúruöflin krefjandi með óveðrum, eldgosum ásamt erfiðri bilun í sæstreng til Vestmannaeyja.
Þrátt fyrir óvæntar áskoranir tókst okkur að ná flestum markmiðum fyrirtækisins.
Styrking flutningskerfisins um allt land er eitt mikilvægasta verkefni Landsnets fyrir orkuskiptin. Í því samhengi er ný öflug tenging frá Akureyri til Hvalfjarðar mikilvægust auk Suðurnesjalínu 2. Í undirbúningi eru nýjar öflugar línur, Holtavörðuheiðarlínur 1 og 3, Blöndulína 3 og Suðurnesjalína 2 í forgangi. Með styrkingu náum við að bæta áfallaþol orkukerfisins, orkunýtni verður betri og afhendingaröryggi, sem er grunnforsenda nútímasamfélags, verður tryggari. Þessar línur skapa forsendur til að við sem þjóð getum tekist á við aukna framleiðslu og notkun sem fylgja orkuskiptunum.
Orkuöryggi og orkuskortur voru mikið í umræðunni á árinu, málefni sem við höfum lengi vakið athygli á. Við áhorf á heimildarmyndina Rafhringur Íslands, sem sýnd var í Ríkissjónvarpinu síðasta sumar, mátti sjá í samtímanum mörg kunnugleg fimmtíu ára gömul stef. Þá var samfélagið að glíma við orkuskort, hátt verð á olíu og stríð fyrir botni Miðjarðarhafs. Með þetta í huga er ljóst að okkur sem þjóð hefur ekki tekist að þróa umhverfi orkumála í takt við þróun samfélagsins og breyttra þarfa.
Til að ná árangri í orkuskiptunum þarf að ráðast í miklar fjárfestingar. Við hjá Landsneti teljum okkur vera vel í stakk búin til að takast á við þær áskoranir. Fjárhagsleg staða okkar er góð og við stöndum á sterkum grunni til á byggja á við fjármögnun komandi verkefna. Það er engu að síður nauðsynlegt að auka skilvirkni í leyfisveitingaferlum meðal annars til að minnka óvissu við fjármögnun slíkra framkvæmda.
Örugg afhending raforku var eins og áður mikilvægasta viðfangsefnið okkar á árinu. Því fylgir mikil ábyrgð sem við tökumst á með okkar frábæra starfsfólki sem stendur vaktina dag og nótt – og er alltaf tilbúið að bregðast við í öllum þeim áskorunum sem lífið hjá Landsneti býður upp á.
Stærsta viðgerðarverkefni ársins var viðgerðin á Vestmannaeyjastreng 3 sem bilaði óvænt í byrjun árs og ljóst varð að fram undan yrði löng og umfangsmikil viðgerð. Viðgerðin gekk ágætlega. Á meðan beðið var eftir viðgerðinni tókst okkur með lausnarmiðuðu hugarfari að tengja saman leiðara úr tveimur biluðum strengjum og tryggja Eyjum forgangsrafmagn þessa sex mánuði sem strengurinn var bilaður. Þannig spöruðum við brennslu á olíu sem nam 2,7 milljónum lítra.
Við höfum mikilvægu hlutverki að gegna gagnvart samfélaginu sem heild og ábyrgð okkar er mikil. Við leggjum áherslu á að skoða ólíkar lausnir með opnum hug og með heildarhagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Við erum líka mjög stolt af því að setja nú fram í fyrsta skipti þessar áherslur okkar í sérstakri árs- og sjálfbærniskýrslu þar sem við tökum saman helstu upplýsingar og verkefni sem snúa að þessum málaflokkum. Auk þess sem hægt er að nálgast frammistöðu okkar í sérstakri frammistöðuskýrslu.
Það er gott fyrir okkur sem fyrirtæki og starfsfólk að vita til þess að horft er til okkar á alþjóðlegum vettvangi hvað varðar nýsköpun í stafrænum lausnum í tengivirkjum og snjöllum lausnum í stýringu á orkukerfinu. Það að ná alþjóðlega athygliverðum árangri er ekki sjálfgefið og veltur að miklu leyti á því að hafa fyrirtækjamenningu sem lítur á áskoranir sem tækifæri til að gera betur og starfsfólk sem hefur bæði þekkingu og áhuga á að skoða nýjar lausnir og að láta hluti raungerast.
Fram undan er áhugaverður tími og við erum á fullri ferð að undirbúa okkur fyrir framtíðina sem er breytingum háð en í breytingum liggja tækifærin og saman erum við tilbúin til að mæta áskorunum framtíðarinnar sem í okkar huga er ljós.
Guðmundur Ingi Ásmundsson , forstjóri Landsnets
Guðmundur Ingi Ásmundsson forstjóri